Ég á yndisleg börn

Monday, August 4th, 2008 | Gamla síðan

Ég get fullyrt það hér og nú að ég og Axel eigum yndislegustu börn í heimi og reyndar höfum við hjónakornin alltaf haldið því fram, (eins og allir aðrir foreldrar).

Fyrir ekki svo löngu síðan fór ég á Flúðir að sækja stelpuna eftir að hún hafði verið í smá sumarfríi hjá ömmu í sveitinni og ákvað ég í leiðinni að fara í kirkjugarðinn með krakkana að heimsækja leiðið hans pabba og sagði því við krakkana að við værum að fara að heimsækja afa Jón. Þegar við komum þangað og göngum fram hjá kirkjunni þá vill Jón Hreiðar endilega fara inní kirkjuna, því hann stóð í þeirri meiningu að þetta væri húsið hans afa Jóns, ég sagði að afi Jón ætti heima uppá himninum en þegar okkur langaði að heimsækja hann þá færum við í kirkjugarðinn. Við förum síðan að leiðinu hans pabba og ég segi að hér sé afi Jón, Jón Hreiðar skilur náttúrlega ekkert í því hvað ég er að fara, en Bylgja Rós er farin að meðtaka þetta svona lala.

Síðan núna fyrir helgina þá er Axel að keyra mig og krakkana uppá Flúðir og þegar við keyrum framhjá kirkjunni á milli Hveragerðis og Selfossar þá segir Jón Hreiðar, þarna á afi Jón heima og bendir á kirkjuna, ég segi nei, hann á ekki heima þarna, hann á heima uppá himninum.

Þá kemur það besta gullkorn frá stelpunni sem ég og Axel höfum nokkrum sinnum heyrt og það vottaði fyrir tárum í augum okkar beggja. Það heyrist í Bylgju Rós: “Pabbi og mamma, ég vildi að ég ætti svo stóran óskastein en að ég gæti samt haldið á honum, þá myndi ég óska mér að afi Jón væri til og ekki uppá himninum heldur hérna hjá okkur þar sem við erum.”
Okkur hjónunum fannst þetta það yndislegasta sem við höfum heyrt og efast ég ekki um að þið sem lesið þetta séuð sammála.

Vildi bara blogga aðeins um þetta, er annars að byrja að vinna aftur á morgun eftir sumarfríið og er það svo sem ágætt nóg komið af sumarfríi í bili.

Tjá tjá í bili.

Engin mótsvör að svo stöddu.

Skildu eftir mótsvar

RSS

Dagatal

August 2008
M T W T F S S
« Jul   Sep »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

Flokkar