Archive for október, 2008
Peningabréf, afmæli og fleira…
Miðvikudagur, október 29th, 2008 | Almennt | mótsvör: 2
Kominn tími á meira blogg?
Þar sem ég er eiginkona, móðir, útivinnandi og er bara ég að þá hefur tíminn ekki leyft mér að vera mikið í blogginu, en ég ætla samt að koma smá bloggi að núna.
Sláturgerðin gekk alveg glimrandi vel hjá mér og mömmu og bragðast líka svona svaka vel, þannig að sláturgerðin í ár fær alveg 10 í einkunn. Æðislegur matur og gott að eiga nóg af þessu á tímum eins og þeim sem eru í dag.
Það er alveg ótrúlegt hvert þetta land virðist ætla stefna, það virðist bara sökkva dýpra og dýpra, hvernig væri nú að fá fólk með eitthvað vit í kollinum til að stjórna landinu, ég get svo svarið það að þessari bannsettu stjórn hér á landi er en stjórnað af manni sem stjórnaði henni fyrir nokkrum árum síðan, nefni engin nöfn, en fyrsti stafurinn er DAVÍÐ….
Við hjónin vorum að ræða það fyrr í kvöld að ef ástandið fer ekki að lagast hér á landi eftir áramótin, að þá væri kannski ekki svo vitlaust að athuga það að kíkja út fyrir landsteinana, sérstaklega ef Axel fer ekki að fá jákvætt svar við atvinnuumsókn, eins líka það að þá get ég ekki hugsað mér að ala upp börnin okkar í ástandi eins og er hérna í dag.
Núna í dag kom það í fréttum að Landsbankinn, eða hvað sem hann nú heitir í dag ætli að fara að borga út peningamarkaðsbréfin, sem er bara gott mál, enda var mér ekki farið að standa á sama, en ég er ein af þeim sem á peningabréf, eða átti. En samt er ég ekki sátt, þar sem að ég fæ ekki nema rúmlega 68% af því sem ég var búin að leggja þar inn og þegar ég leitaði til bankans á sínum tíma til að fá upplýsingar um bestu og öruggustu sparnaðarleiðina að þá voru peningabréfin svarið, engin áhætta, tapar engu, alltaf laust og svo framvegis, þannig að ég taldi þetta öruggt og treyst því sem mér var sagt, en svo BÚMM……..
Mig langar alla vega mikið að vita hvort maður geti gert eitthvað til að leita réttar síns í þessu máli og að ég geti fengið þann pening sem ég var búin að leggja þarna inn, það stóð aldrei til að gefa Landsbankanum peninginn, ég hef nóg annað við hann að gera, það er ekki eins og að ég heiti Björgólfur…
En annars er það að frétta að prinsinn á heimilinu varð þriggja ára núna 18. okt. og svo verður Bylgja Rós 5 ára núna 11. nóv. og í tilefni af afmælunum þeirra ætlum við að halda sameiginlega afmælisveislu fyrir þau núna um helgina. Bylgja Rós og Jón Hreiðar fengu að hringja í nokkra sem er boðið í afmælið núna í kvöld og var Jón Hreiðar alveg harðákveðinn í því að hringja í afa Jón og var frekar ósáttur við að það væri ekki hægt, en því miður að þó að Vodafone sé frábært fyrirtæki að þá bjóða þeir ekki upp á þá þjónustu að ná af þeim sem eru farnir til annarra ævintýra, spurning um að ég tékki á því í vinnunni á morgun hvort það sé nokkuð næsta skref =)
En já, annars erum við hér á þessu heimili bara jákvæð og bjartsýn, það þýðir ekkert annað frekar en fyrri daginn.
Bið að heilsa í bili.
Kominn tími á smá blogg
Þriðjudagur, október 7th, 2008 | Almennt | mótsvör: 5
Eins og þið sjáið sem skoðið bloggið mitt að þá er komið nýtt útlit, er þetta bara tímabundið útlit þar sem Axel er búinn að vinna í að gera nýtt útlit handa mér, en það vantar m.a. rétta veðrið til að klára það. Þannig að þið verðið bara að bíða spennt á meðan við Axel bíðum eftir rétta veðrinu =)
Annars er það að frétta af mér að mér er farið að líða mun betur, enda vinn ég í mínum málum dag fyrir dag og skref fyrir skref og er allt orðið svo mun auðveldara eftir að ég fór að tala um hlutina, enda búin að geyma þetta allt saman nánast útaf fyrir sjálfan mig í öll þessi ár. En eins og ég hef áður sagt, þá tekur þetta allt sinn tíma, ég á náttúrlega eftir að lifa með þessu alla ævi en það á eftir að vera auðveldara, sérstaklega afþví að núna get ég talað um þetta og er ekki að fela þetta lengur. En þetta er alla vega allt saman skref í rétta átt.
Varðandi fjölskyldulífið, þar gengur allt sinn vanagang, krakkarnir á leikskólanum og svo fer að líða að því að Jón Hreiðar verði 3ja ár og Bylgja Rós 5 ára, alveg ótrúlegt en satt að þá er innan við ár þar til unga ákveðna daman byrjar í skóla. Eina sem er erfitt hjá okkur núna er að Axel er atvinnulaus, en þar sem við erum svo bjartsýn á allt að þá hlýtur að fara að koma að því að hann fái vinnu.
Af vinnunni minni að frétta, þá gengur allt mjög vel hjá mér þar og er ég bara hæstánægð með mína vinnu og það sem ég er að gera þar.
Mamma er að koma í bæinn í dag eða á morgun og helginni ætlum við að eyða í að gera slátur, mér finnst slátur alltaf jafn gott og eru aðrir í fjölskyldunni líka jafn hrifnir afþví, svo er þetta líka ódýr matur og fínt að taka nóg af þessu eins og staðan í þjóðfélaginu er í dag.
Svo er kannski ágætt að enda þetta blogg á því að taka það fram að þriðji erfinginn er ekki á leiðinni, ég er ekki ólétt eins og fjölmargir hafa spurt mig að og stendur það ekki til næstu árin, við hjónin erum of ung til að vera með þrjú börn =) En aldrei að vita hvað verður þegar við erum orðin eldri og ef landið fer ekki á hausinn.
En ég bið að heilsa í bili..