Peningabréf, afmæli og fleira…

Miðvikudagur, október 29th, 2008 | Almennt

Kominn tími á meira blogg?

Þar sem ég er eiginkona, móðir, útivinnandi og er bara ég að þá hefur tíminn ekki leyft mér að vera mikið í blogginu, en ég ætla samt að koma smá bloggi að núna.

Sláturgerðin gekk alveg glimrandi vel hjá mér og mömmu og bragðast líka svona svaka vel, þannig að sláturgerðin í ár fær alveg 10 í einkunn. Æðislegur matur og gott að eiga nóg af þessu á tímum eins og þeim sem eru í dag.

Það er alveg ótrúlegt hvert þetta land virðist ætla stefna, það virðist bara sökkva dýpra og dýpra, hvernig væri nú að fá fólk með eitthvað vit í kollinum til að stjórna landinu, ég get svo svarið það að þessari bannsettu stjórn hér á landi er en stjórnað af manni sem stjórnaði henni fyrir nokkrum árum síðan, nefni engin nöfn, en fyrsti stafurinn er DAVÍÐ….

Við hjónin vorum að ræða það fyrr í kvöld að ef ástandið fer ekki að lagast hér á landi eftir áramótin, að þá væri kannski ekki svo vitlaust að athuga það að kíkja út fyrir landsteinana, sérstaklega ef Axel fer ekki að fá jákvætt svar við atvinnuumsókn, eins líka það að þá get ég ekki hugsað mér að ala upp börnin okkar í ástandi eins og er hérna í dag.
Núna í dag kom það í fréttum að Landsbankinn, eða hvað sem hann nú heitir í dag ætli að fara að borga út peningamarkaðsbréfin, sem er bara gott mál, enda var mér ekki farið að standa á sama, en ég er ein af þeim sem á peningabréf, eða átti. En samt er ég ekki sátt, þar sem að ég fæ ekki nema rúmlega 68% af því sem ég var búin að leggja þar inn og þegar ég leitaði til bankans á sínum tíma til að fá upplýsingar um bestu og öruggustu sparnaðarleiðina að þá voru peningabréfin svarið, engin áhætta, tapar engu, alltaf laust og svo framvegis, þannig að ég taldi þetta öruggt og treyst því sem mér var sagt, en svo BÚMM……..
Mig langar alla vega mikið að vita hvort maður geti gert eitthvað til að leita réttar síns í þessu máli og að ég geti fengið þann pening sem ég var búin að leggja þarna inn, það stóð aldrei til að gefa Landsbankanum peninginn, ég hef nóg annað við hann að gera, það er ekki eins og að ég heiti Björgólfur…

En annars er það að frétta að prinsinn á heimilinu varð þriggja ára núna 18.  okt. og svo verður Bylgja Rós 5 ára núna 11. nóv. og í tilefni af afmælunum þeirra ætlum við að halda sameiginlega afmælisveislu fyrir þau núna um helgina. Bylgja Rós og Jón Hreiðar fengu að hringja í nokkra sem er boðið í afmælið núna í kvöld og var Jón Hreiðar alveg harðákveðinn í því að hringja í afa Jón og var frekar ósáttur við að það væri ekki hægt, en því miður að þó að Vodafone sé frábært fyrirtæki að þá bjóða þeir ekki upp á þá þjónustu að ná af þeim sem eru farnir til annarra ævintýra, spurning um að ég tékki á því í vinnunni á morgun hvort það sé nokkuð næsta skref =)

En já, annars erum við hér á þessu heimili bara jákvæð og bjartsýn, það þýðir ekkert annað frekar en fyrri daginn.

Bið að heilsa í bili.

mótsvör: 2 to Peningabréf, afmæli og fleira…

Dúna
október 29, 2008

Kvitt kvitt fyrir mig. Rakst inn á þessa síðu. Til hamingju með börnin þin.
kv. úr Sveitinni

Ásta
nóvember 16, 2008

Sæl öll, það eru fleiri í fjölskyldunni í þessum leiðinlega peningabréfamóral, kannast við það.
Innilega til hamingju með börnin tvö, með þessu áframhaldi gætum við fjölskyldan kannski stofnað nýlendu erlendis :-)
knús

Skildu eftir mótsvar

RSS

Dagatal

október 2008
Þ Mi Fi L S
« sept.   nóv. »
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Flokkar