Archive for nóvember 20th, 2008

Smá blogg í tilefni dagsins

Fimmtudagur, nóvember 20th, 2008 | Almennt | mótsvör: 1

Jæja, þá er mín búin að eldast um en eitt árið og bara sátt með það. Ég er sem sagt búin að lifa í heil 28 ár og aldrei verið unglegri =)
Afmælisdagurinn fór í að skutla Bylgju Rós á leikskólann, fara í vinnuna, vinna helling, ná í Bylgju Rós á leikskólann, elda matinn, eldaði Lasagne og svo var ís í eftirrétt svona í tilefni dagsins og krakkarnir og Axel sungu fyrir mig afmælissönginn. Svo fékk ég blómasendingu frá tengdaforeldrum mínum, endalaust af kveðjum á facebook og msn, fullt af sms’um og símtölum og svo rigndi yfir mig hamingjuóskum í vinnunni. Svo núna um daginn keyptum við Axel okkur miða á Ladda sýninguna og á það að vera afmælisgjöf til hvors annars, en við förum á Ladda á afmælisdaginn hans Axels núna í desember.

Annars er það af mér og mínum að frétta að ég er búin að vera á fullu í vinnunni, Bylgja Rós búin að fá hlaupabóluna, lá í hlaupabólu á afmælisdaginn, þannig að það bættist við en einn afmælisdagurinn hjá henni þar sem hún var veik og svo núna í gær sótti Axel Jón Hreiðar á leikskólann þar sem bólurnar voru farnar að láta sjá sig. Ég er mjög fegin að þau séu loksins búin að fá hlaupabóluna því þá er því lokið.
Axel er byrjaður að leita sér að vinnu í Noregi og vonandi á það eftir að ganga vel. Ef hann fær vinnu þar þá fer hann út og við hin myndum svo fylgja á eftir fljótlega.
Þó að ég hafi enga löngun til að láta starfið mitt hjá Vodafone frá mér, né flytja úr landi, þá sé ég engan annan kost eins og staðan er í dag, því ekki lifir fjögurra manna fjölskylda á launum eins fullorðins í dag, þannig er það bara.

Annars hef ég það bara ágætt og hefur mér bara liðið mjög vel núna undanfarið, fyrir utan smá kvefpest en maður kemst yfir það. Ég hugsa mikið um fortíðina og tala mikið um hana, en það er bara hlutur af því að vinna sig út úr þessu öllu saman, eins hef ég verið ágætlega dugleg við að skrifa um allt saman, en það er bara eitthvað sem ég kem til með að eiga fyrir mig og mína nánustu. Það sem ég set inn hér um fortíð mína er það eina sem þið sem lesið bloggið mitt, fáið að vita og lesa um málið, alla vega eins og staðan er í dag.
En það gengur alla vega vel hjá mér að vinna í þessu öllu saman, en ég veit það að ég á náttúrlega alltaf eftir að lifa með þessu, en mér á eftir að líða betur með hverjum deginum og ég finn það núna hvað ég var að gera sjálfri mér með að þegja og liggur við að ég geti sagt það að sárasti hlutinn yfir þessu öllu saman hafi verið að þegja.

En jæja, ég ætla að segja þetta gott í bili, er að spá í að fara bara að leggjast í bælið, enda aldurinn farinn að segja til sín =)

Bið að heilsa í bili

RSS

Dagatal

nóvember 2008
Þ Mi Fi L S
« okt.   mars »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930

Flokkar