Archive for April, 2009
Kosningar
Saturday, April 25th, 2009 | Almennt | mótsvör: 0
Jæja, þá er ég búin að kjósa og kaus að kjósa það sem ég kaus, eflaust margir ánægðir með það sem ég kaus og aðrir eflaust óánægðir, ég rölti með Bylgju Rós að kjósa og mikið var gott að fá sér smá göngutúr í þessu góða veðri. Axel kom ekki með þar sem hann kýs að kjósa ekki og er það hans val.
Það var eitt sem Bylgja Rós tók eftir þegar við fórum að kjósa, það var að þegar við komum að kjörstjórninni þá heyrist í henni “mamma, þessi maður er alveg eins og töframaðurinn” sem var mikið rétt hjá henni þar sem einn af þeim sem var í kjörstjórninni var töframaðurinn sem hún aðstoðaði í fermingarveislunni um daginn, spurning hvort hann geti breytt atkvæðunum með töfrum ef maður hefur ekki kosið rétt ;)
Það þarf lítið til, til að týnast í öðrum heimi.
Friday, April 24th, 2009 | Almennt | mótsvör: 0
Ég komst að því í dag hvað ég er óendanlega þakklát fyrir börnin mín, manninn minn, aðra fjölskyldumeðlimi, vini mína, vinnufélaga mína, vinnuna mína og svo margt margt annað. Það er ótrúlegt hvað allt getur breyst á nokkrum mínútum og maður fær engu við ráðið.
Ég komst að því að það er svo margt annað sem skiptir máli í þessu lífi en þessi árans kreppa sem allir lifa og fæðast á þessa dagana og þessar blessuðu kosningar, en samt ætla ég að kjósa og ég ætla að kjósa að kjósa ;)
Ég er alla vega í öðrum heimi núna en ég var í þegar ég vaknaði í morgun, þá var allt svo jákvætt eitthvað, svo bara allt í einu BÚMM og ég veit ekki hvaða tilfinningar brjótast um hjá mér, en finnst ég svolítið týnd, í öðrum heimi, eða utan við mig.
Vil samt taka fram að með þessu örstutta bloggi er ég ekki í neinu svartsýnis eða þunglyndiskasti ;) Ég fékk bara fréttir í dag, sem gætu átt eftir að breyta lífi mínu á vissan hátt, kannski ekki, það kemur allt í ljós. Þangað til að ég veit meira þá ætla ég ekki að segja meira, bara hafa það fyrir mig, manninn minn, tengdaforeldra og mömmu, kannski óþarfi að vera að blogga svona tvísýna færslu, en ekki rangtúlka neitt, þið fáið að vita meira síðar.
Þetta stutta blogg er meira fyrir mig og til að benda á hvað það þarf lítið til að allt breytist, ég hef að vísu svo sannarlega kynnst því, en þetta er eitthvað svo allt öðruvísi.
En eitt að lokum, knúsið þann sem er ykkur næstur, það er þess virði ;)
Ferming, 28 ára skírnarafmæli og þreyta…
Sunday, April 19th, 2009 | Almennt | mótsvör: 4
Þá er en ein fermingarveislan að baki, en það var verið að ferma yngsta barnabarn ömmu og afa föðurmegin í dag, hana Agnesi Ósk, hún varð voða flott og fín. Síðan kom töframaður í veisluna og sýndi nokkur atriði og var Bylgja Rós m.a. fengin til að aðstoða hann og mikið var hún ánægð =)
Í dag eru líka heil 28 ár liðin frá því að ég fékk nafnið Kristín Ásta, spurning um að fara að skipta um nafn eftir öll þessi ár =) En ég, Rúnar og Fjóla Sigrún vorum öll skírð þennan dag fyrir 28 árum síðan í Hrunakirkju og var það séra Sveinbjörn sem skírði okkur. Ég man þetta eins og það hafi verið í gær =)
Á þriðjudaginn eru svo 15 ár liðin frá því að bekkjarsystkini mín fermdust og í raun hefði það líka átt að vera minn fermingardagur, en þar sem mamma veiktist viku fyrir ferminguna mína þá fermdist ég ekki fyrr en 4. september 1994. En ég lít nú reyndar á 21. apríl sem svona hálfgerðan fermingardaginn minn.
Annars er allt ágætt að frétta, ég er að vísu búin að vera óvenjuþreytt undan farið, átt erfitt með að sofna á kvöldin, en lítið mál að vakna á morgnana sem betur fer, hef svo haldið mér vakandi í vinnunni með kaffidrykkju og gengur það bara þrusuvel.
Það lítur líka út fyrir að sumarið sé að koma, en það er minn tími, hef alltaf verið meiri sumar en vetrarmanneskja, en finnst samt alveg ágætlega gaman að snjónum. Ég alla vega lít á komandi sumar björtum og jákvæðum augum þrátt fyrir allt sem er í gangi í þessu blessaða þjóðfélagi.
En jæja, höfum þetta gott í bili, vildi bara sýna það og sanna að ég get alveg bloggað, heilar þrjár færslur á stuttum tíma =)
Gleðilega páska
Sunday, April 12th, 2009 | Almennt | mótsvör: 0
Já, þá eru páskarnir komnir einu sinni en með öllu tilheyrandi.
Ég og mínir erum búin að hafa það ágætt þessa daga, fórum austur á Skírdag í sveitina til mömmu, eða “ömmu Siggu Hönnu Siggu” eins og einn ungur maður hér á heimilinu kallar hana, sem er heilmikil framför, því áður var hún kölluð “amma Sigga”.
En já, á Skírdag var brunað í sveitina, fengum nýbakaða pizzu í Golfskálanum sem Halldór gerði handa okkur og ég get sko alveg lofað því að mér finnst þetta bestu pizzurnar sem ég hef smakkað, þó ég segi sjálf frá. Svo eyddum við kvöldinu með börnunum okkar, sem voru í miklu stuði og engan vegin til í að fara að sofa, en við hjónin fórum á endanum að sofa bara með þeim og þar með slökknaði á öllum á sama tíma.
Á Föstudaginn langa var okkur boðið í fermingarveislu til Hákons Egils í Golfskálanum og þrömmuðum við þangað yfir, ég, Axel, Jón Hreiðar, Bylgja Rós og mamma, nema að mamma datt kylliflöt á leiðinni þangað og þar sem ég sá hana ekki detta, þá brá mér frekar mikið, þar sem hún lá algjörlega hreyfingalaus í grasinu, en ég hélt að hún hefði liðið útaf, en svo þegar ég kom að henni sá ég að svo var ekki.
En það var heilmikið af fólki í veislunni og mikið um kökur og brauðrétti sem bragðaðist alveg ágætlega. Amma mín mætti líka í veisluna og var gaman að hitta hana eftir allan þennan tíma, mér finnst hún alveg einstaklega hress miðað við að hún verður 98 ára eftir nokkra daga og það var alveg yndislegt að sjá hvað hann Jón Hreiðar var hrifinn af henni, hann var alltaf að klappa henni og strjúka og talaði heilmikið við hana svo á endanum þá skreið hann uppí fangið á henni og knúsaði hana. Ég notaði tækifærið og smellti einni mynd af þeim saman, líka gaman að sjá þau saman yngsta og elsta fjölskyldumeðliminn, heil 94 ár á milli þeirra :)Eftir veisluna héldum við svo aftur í bæinn og kom mamma þá með okkur, en hún ætlar að vera hjá okkur í nokkra daga, þar sem hún þarf að stússast með bílinn sinn, fara til læknis og þess háttar.
Laugardagurinn fór svo annars vegar í smá búðarráp með mömmu og hins vegar í afslöppun þar sem ég var eitthvað óvenjuþreytt allan daginn, en það getur komið fyrir á bestu bæjum =)
Svo var það dagurinn í dag sjálfur páskadagur, dagurinn byrjaði á því að allir fengu sér hollan og góðan morgunmat, nema Axel sem ákvað að hans morgunmatur yrði páskaegg….
Eftir morgunmatinn var farið í að leita að páskaeggjunum og ekki tók það langan tíma fyrir hvern að finna sitt egg. Eggin hurfu á engri stundu ofan í Axel og krakkana, en mitt er en óbrotið í skál á eldhúsborðinu, ætla að njóta þess að borða það fyrir framan alla hina á morgun alein, hehehe…
En það fengu allir sinn málshátt og gátu þeir ekki passað betur.
Axel fékk: “Þangað fýsir elskhugann sem unnustan er”
Bylgja Rós fékk: “Oft er stór kólfur í lítilli klukku”
Jón Hreiðar fékk: “Sá árla rís verður margs vís”
Ég fékk: “Á misjöfnu þrífast börnin best”
Við ákváðum svo að sleppa hamborgarhryggnum sem við ætluðum að hafa í páskamat og skelltum okkur í að grilla frekar og sé ég ekki eftir því, fengum okkur dýrindis grísakjöt með ýmsu meðlæti og var það bara æði =)
Kvöldið er ég svo búin að nota í sjónvarpsgláp með krökkunum og slökun, er alltof södd eftir matinn, fegin að ég lét páskaeggið eiga sig =)
Ætla svo að njóta þess að vera í fríi á morgun líka og gera eitthvað með krökkunum, vona að það verði áfram þetta yndislega veður sem er búið að vera síðustu daga svo ég geti eytt deginum með þeim utan dyra, svo er ég að spá í að taka aðeins til í kotinu.
Læt þetta duga í bili, gleðilega páska þið sem álpist hingað inn =)