Archive for apríl 12th, 2009

Gleðilega páska

Sunnudagur, apríl 12th, 2009 | Almennt | mótsvör: 0

Já, þá eru páskarnir komnir einu sinni en með öllu tilheyrandi.
Ég og mínir erum búin að hafa það ágætt þessa daga, fórum austur á Skírdag í sveitina til mömmu, eða „ömmu Siggu Hönnu Siggu“ eins og einn ungur maður hér á heimilinu kallar hana, sem er heilmikil framför, því áður var hún kölluð „amma Sigga“.

En já, á Skírdag var brunað í sveitina, fengum nýbakaða pizzu í Golfskálanum sem Halldór gerði handa okkur og ég get sko alveg lofað því að mér finnst þetta bestu pizzurnar sem ég hef smakkað, þó ég segi sjálf frá. Svo eyddum við kvöldinu með börnunum okkar, sem voru í miklu stuði og engan vegin til í að fara að sofa, en við hjónin fórum á endanum að sofa bara með þeim og þar með slökknaði á öllum á sama tíma.

Á Föstudaginn langa var okkur boðið í fermingarveislu til Hákons Egils í Golfskálanum og þrömmuðum við þangað yfir, ég, Axel, Jón Hreiðar, Bylgja Rós og mamma, nema að mamma datt kylliflöt á leiðinni þangað og þar sem ég sá hana ekki detta, þá brá mér frekar mikið, þar sem hún lá algjörlega hreyfingalaus í grasinu, en ég hélt að hún hefði liðið útaf, en svo þegar ég kom að henni sá ég að svo var ekki.
En það var heilmikið af fólki í veislunni og mikið um kökur og brauðrétti sem bragðaðist alveg ágætlega. Amma mín mætti líka í veisluna og var gaman að hitta hana eftir allan þennan tíma, mér finnst hún alveg einstaklega hress miðað við að hún verður 98 ára eftir nokkra daga og það var alveg yndislegt að sjá hvað hann Jón Hreiðar var hrifinn af henni, hann var alltaf að klappa henni og strjúka og talaði heilmikið við hana svo á endanum þá skreið hann uppí fangið á henni og knúsaði hana. Ég notaði tækifærið og smellti einni mynd af þeim saman, líka gaman að sjá þau saman yngsta og elsta fjölskyldumeðliminn, heil 94 ár á milli þeirra :)Eftir veisluna héldum við svo aftur í bæinn og kom mamma þá með okkur, en hún ætlar að vera hjá okkur í nokkra daga, þar sem hún þarf að stússast með bílinn sinn, fara til læknis og þess háttar.

Laugardagurinn fór svo annars vegar í smá búðarráp með mömmu og hins vegar í afslöppun þar sem ég var eitthvað óvenjuþreytt allan daginn, en það getur komið fyrir á bestu bæjum =)

Svo var það dagurinn í dag sjálfur páskadagur, dagurinn byrjaði á því að allir fengu sér hollan og góðan morgunmat, nema Axel sem ákvað að hans morgunmatur yrði páskaegg….
Eftir morgunmatinn var farið í að leita að páskaeggjunum og ekki tók það langan tíma fyrir hvern að finna sitt egg. Eggin hurfu á engri stundu ofan í Axel og krakkana, en mitt er en óbrotið í skál á eldhúsborðinu, ætla að njóta þess að borða það fyrir framan alla hina á morgun alein, hehehe…

En það fengu allir sinn málshátt og gátu þeir ekki passað betur.

Axel fékk: „Þangað fýsir elskhugann sem unnustan er“
Bylgja Rós fékk: „Oft er stór kólfur í lítilli klukku“
Jón Hreiðar fékk: „Sá árla rís verður margs vís“
Ég fékk: „Á misjöfnu þrífast börnin best“

Við ákváðum svo að sleppa hamborgarhryggnum sem við ætluðum að hafa í páskamat og skelltum okkur í að grilla frekar og sé ég ekki eftir því, fengum okkur dýrindis grísakjöt með ýmsu meðlæti og var það bara æði =)
Kvöldið er ég svo búin að nota í sjónvarpsgláp með krökkunum og slökun, er alltof södd eftir matinn, fegin að ég lét páskaeggið eiga sig =)

Ætla svo að njóta þess að vera í fríi á morgun líka og gera eitthvað með krökkunum, vona að það verði áfram þetta yndislega veður sem er búið að vera síðustu daga svo ég geti eytt deginum með þeim utan dyra, svo er ég að spá í að taka aðeins til í kotinu.

Læt þetta duga í bili, gleðilega páska þið sem álpist hingað inn =)

RSS

Dagatal

apríl 2009
Þ Mi Fi L S
« mars   júní »
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930  

Flokkar