Ferming, 28 ára skírnarafmæli og þreyta…

Sunday, April 19th, 2009 | Almennt

Þá er en ein fermingarveislan að baki, en það var verið að ferma yngsta barnabarn ömmu og afa föðurmegin í dag, hana Agnesi Ósk, hún varð voða flott og fín. Síðan kom töframaður í veisluna og sýndi nokkur atriði og var Bylgja Rós m.a. fengin til að aðstoða hann og mikið var hún ánægð =)

Í dag eru líka heil 28 ár liðin frá því að ég fékk nafnið Kristín Ásta, spurning um að fara að skipta um nafn eftir öll þessi ár =) En ég, Rúnar og Fjóla Sigrún vorum öll skírð þennan dag fyrir 28 árum síðan í Hrunakirkju og var það séra Sveinbjörn sem skírði okkur. Ég man þetta eins og það hafi verið í gær =)

Á þriðjudaginn eru svo 15 ár liðin frá því að bekkjarsystkini mín fermdust og í raun hefði það líka átt að vera minn fermingardagur, en þar sem mamma veiktist viku fyrir ferminguna mína þá fermdist ég ekki fyrr en 4. september 1994. En ég lít nú reyndar á 21. apríl sem svona hálfgerðan fermingardaginn minn.

Annars er allt ágætt að frétta, ég er að vísu búin að vera óvenjuþreytt undan farið, átt erfitt með að sofna á kvöldin, en lítið mál að vakna á morgnana sem betur fer, hef svo haldið mér vakandi í vinnunni með kaffidrykkju og gengur það bara þrusuvel.

Það lítur líka út fyrir að sumarið sé að koma, en það er minn tími, hef alltaf verið meiri sumar en vetrarmanneskja, en finnst samt alveg ágætlega gaman að snjónum. Ég alla vega lít á komandi sumar björtum og jákvæðum augum þrátt fyrir allt sem er í gangi í þessu blessaða þjóðfélagi.

En jæja, höfum þetta gott í bili, vildi bara sýna það og sanna að ég get alveg bloggað, heilar þrjár færslur á stuttum tíma =)

mótsvör: 4 to Ferming, 28 ára skírnarafmæli og þreyta…

Axel Rafn
April 19, 2009

Ég er nú allur að koma til sjálfur.. held að ég sé að breytast úr vetrar- yfir í sumarmann!

Jólabarnið ég sko!

Kristín
April 19, 2009

Þetta vill oft breytast með aldrinum =)

Axel Rafn
April 19, 2009

Are you calling me old ?!

Kristín
April 20, 2009

Nei nei, alls ekki bara að þú sért orðinn eldri ;)

Skildu eftir mótsvar

RSS

Dagatal

April 2009
M T W T F S S
« Mar   Jun »
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930  

Flokkar