Jæja, þá er komið að því…

Fimmtudagur, ágúst 27th, 2009 | Almennt

Síðustu daga hef ég verið alveg ofboðslega utan við mig, hugsa að það sé útaf þessum mikla kvíða sem ég er að kljást við útaf sprautunni, en ég fékk dagsetningu í síðustu viku og sú dagsetning er á morgun, þannig að já, það er loksins komið að því, hefði samt viljað vita það kannski svona klukkutíma áður, þar sem ég er alveg ofboðslega hrædd við sprautur og nálar. Þannig að það hefur verið lítið um svefn hjá mér síðustu daga.
En ég er samt fegin að það sé loksins komið að þessu og vona bara innilega að lyfið virki vel á mig og að þetta verði til þess að ég sigrist á sprautufælninni, en mér til halds og trausts verður Axel og ætlar hann líka að læra að sprauta mig.
Það er líka gott að það sé að koma að þessu, því ég er farin að finna meira fyrir einkennum MS sjúkdómsins og þetta lyf á að draga úr því og halda honum í skefjum og eins og ég hef sagt áður að þá skiptir það mig mestu máli að geta hugsað um fjölskylduna mína og unnið vinnuna mína sem lengst og þá helst til æviloka, en ég ætla náttúrlega að verða a.m.k. aldargömul :)

Annars er ég bara að vinna mína yndislegu vinnu og hugsa um börnin mín þessa dagana, það var að vísu dálítið erfitt að byrja að vinna aftur eftir sumarfríið, en ég var ein heima fyrstu vikuna sem var svo sem ágætt, því þá hafði ég tímann útaf fyrir mig eftir vinnu og gat slakað almennilega á og reynt að hvíla mig sem mest.

Svo er Jón byrjaður á nýja leikskólanum, Brekkuborg. Aðlögunin gekk bara vel hjá honum og okkur líst bara vel á nýja leikskólann og starfsfólkið þar.
Stóru fréttirnar eru samt þær að frumburðurinn hún Bylgja Rós er byrjuð í skóla, Húsaskóla, alveg hreint ótrúlegt hvað tíminn flýgur, maður er nýbúin að fá hana í fangið og svo er hún allt í einu byrjuð í grunnskóla. Hún er mjög ánægð og stolt af að vera byrjuð og sagði m.a. annars við mig strax eftir fyrsta kennsludaginn að nú kynni hún bæði að reikna og sauma. Okkur líst líka vel á skólann hjá henni og umsjónarkennarann hennar.

Núna styttist svo í að Axel komi alveg heim aftur, en það verður um miðjan september, en þá er vinnan búin hjá honum og algjörlega óvitað hvað tekur við. Það lítur alla vega ekki vel út með vinnu en við erum endalaust að leita og líta í kringum okkur að vinnu fyrir hann, þannig að ef einhver veit um eitthvað þá er það vel þegið. Því þó að það verði gott að fá hann heim til mín og barnanna aftur, þá er samt kvíði fjármálalega séð. En ég reyni að vera bjartsýn á þetta allt saman, maður verður alla vega að reyna.

En jæja, ætla að fara að hvíla mig hvað úr hverju, Axel er komin heim til að fara með mér á morgun uppá sjúkrahús og vonandi gengur þetta vel og vonandi verða engar aukaverkanir. Ég skrifa kannski smá hérna inn annað kvöld ef ég verð hress og kát eftir daginn.

Annars bara, hafið það öll alveg innilega gott sem nennið að lesa þetta :)

mótsvör: 2 to Jæja, þá er komið að því…

Dúna Rut
ágúst 28, 2009

Gangi þér vel Kristín mín!
Veit að þú átt eftir að standa þig eins og hetja í þessu eins og öðru sem lífið hefur boðið þér uppá!

Kristín
ágúst 28, 2009

Takk fyrir það Dúna mín, ég reyni að líta á björtu hliðarnar. Verð bara að loka augunum á meðan okkur verður kennt þetta =)

Skildu eftir mótsvar

RSS

Dagatal

ágúst 2009
Þ Mi Fi L S
« júní   okt. »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31  

Flokkar