Gamla síðan

Flutningahelgin mikla

Friday, July 4th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Þá er komið að flutningahelginni sjálfri, ég er búin að vera á fullu að pakka nánast alla daga langt fram á nótt og vinn svo á daginn, verð fegin þegar þetta verður búið. En samt á ég alveg eftir að sakna þess að búa hérna, við erum búin að eiga yndislega nágranna og þetta er alveg yndislegt hverfi til að búa í, ég er ekki alveg að skilja hvað mörgum finnst Breiðholtið vera mesta krimmahverfið í bænum. Ég viðurkenni það samt alveg að þegar við Axel bjuggum í fellunum þegar við byrjuðum fyrst að búa, þá stóð manni ekkert alltaf á sama, alltaf þvílík ólæti, dauðadrukknir nágrannar bankandi uppá hjá manni um miðja nótt og eilífur ófriður, en hérna í bökkunum er allt annað og bara æðislegt að vera. “Það er gott að búa í Bökkunum.” En við erum náttúrlega ekki að flytja langt, nánast í næstu blokk =)

Ég tók mér einn sumarleyfisdag frá vinnunni í dag, enda heilmikið eftir og á ég eflaust eftir að vera langt fram á nótt að græja hlutina, nýju íbúðina fáum við svo í hádeginu á morgun. Mamma var svo indæl að taka krakkana í sveitina, enda gengur mun betur að flytja þegar þau eru í pössun og maður þarf ekki að hafa augun á þeim.

Ég ætla að hafa þetta stutt núna, vildi bara aðeins láta vita af mér áður en við flytjum og eins þakka ég nakta nágrannanum fyrir að vera að ryksuga svalirnar sínar í dag, það bjargaði deginum =)

Læt vita næst af mér eftir flutningana, þangað til þá….

 

Til hamingju Ísland

Tuesday, June 17th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Til hamingju Ísland með afmælið :)

Í tilefni dagsins fórum við niðrí bæ með börnin, kom mér verulega á óvart hversu vel gekk að fá stæði og hélt jafnvel að það yrði bara langbest að labba að heiman. Við kíktum á Arnarhól og sáum þar Skoppu og Skrítlu, Gosa og ýmislegt fleira skemmtilegt. Börnin voru alla vega himinlifandi, sérstaklega Bylgja Rós. Á heimleiðinni skelltum við okkur svo í búð og keyptum okkur mat á grillið og þegar heim var komið tók bóndinn sig til og grillaði herlegheitin, enda alveg yndislegt grillveður.

Annars er lítið að frétta, ég er náttúrlega búin að vera ofurdugleg að pakka og lítið eftir í stofuskápunum nema stellið og fínu glösin, þarf að redda mér fleiri kössum, það fer að koma að því að það verði kassaskortur á heimilinu, (þ.e.a.s. skortur á tómum kössum). Ætla að reyna að vera búin að pakka öllu nema því allra nauðsynlegasta núna um helgina, en spurning hvernig það gengur.

Læt þetta duga í bili, ætla að fara og pakka smá meira og glápa aðeins á imbann :)

 

Bloggedí blogg

Saturday, June 14th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Jæja, þá er komið helgarfrí og verð ég eiginlega að segja að þrátt fyrir að mér finnist gaman í vinnunni að þá er ég búin að þrá þetta helgarfrí alla vikuna.

Þessa helgina er planið að halda áfram að pakka, kíkja út að hjóla með börnin og fara svo kannski í smá ísrúnt, en Axel er að vinna núna um helgina. Alla vegana ætla ég að vera dugleg að pakka, nenni ekki að vera að þessu á síðustu stundu og ég ætla að vona að hendin á mér hagi sér vel næstu dagana, annað en hún hefur gert síðustu dagana. Hef lítið sem ekkert sofið síðustu nætur út af verkjum og það er sama hvað ég geri það fylgir öllu þvílíkar kvalir, ég var t.d. að hengja upp þvott núna í vikunni og endaði nánast grenjandi útaf sársauka.

En það fer vonandi að líða að því að það finnist hvað er að angra mig í hendinni, ég er búin að vera svona í rúm þrjú ár og er búin að vera meira en minna í rannsóknum allan þann tíma, hef að vísu ekkert farið til læknis síðan í nóvember/desember í fyrra þar sem ég var orðin svo þreytt á því að enginn af þeim ábyggilega tíu til fimmtán læknum sem ég hef farið til veit hvað er að. En núna er ég endanlega búin að gefast upp útaf kvölum og er komin á biðlista hjá nýjum lækni, ég verð að fara að fá vita hvað er að ég get ekki setið bara og gert ekki neitt nema að éta verkjalyf, ég hef engan áhuga á því að verða háð þeim. Þannig að ég vona að læknirinn sem ég er að bíða eftir að komast að hjá sé algjör töfralæknir.

Jæja, ætla að fara að vinna í því að koma mér og krökkunum úr náttfötunum svo við getum skellt okkur út og nýtt veðurblíðuna, enda veitir mér ekki af, búin að hanga inni alla vikuna og missa af þessu yndislega veðri.

Boj boj

 

Nú ætla ég að vera dugleg ;)

Monday, June 9th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Já, núna ætla ég að vera dugleg að blogga fyrst að bloggið mitt er komið aftur í gagnið og svo verð ég náttúrlega að vera duglegri en kallinn ;)

Þá er en ein vinnuvikan hafin og nóg að gera þar, en þar sem að mér finnst gaman í vinnunni að þá kvarta ég alls ekki undan því að hafa nóg að gera. Svo er líka nóg að gera hérna heima, er byrjuð að dunda mér við að pakka enda veitir ekki af þar sem tíminn flýgur áfram, það verður komið að flutningum áður en maður veit af.

Ég rak augun í frétt áðan, rétt áður en ég fór heim úr vinnunni og tengist hún hækkun á bensíni, ég bara spyr, hvernig er þetta hægt og hversu lengi ætlar fólk að láta bjóða sér upp á þetta? Það er alla vega alveg á hreinu að hér á þessu heimili verður bílinn ekki hreyfður nema í ítrustu nauðsyn, alla vega ekki á meðan okurfélögin haga sér svona. Við verslum við Atlantsolíu, erum reyndar bara nýbúin að fá okkur lykil þar, versluðum áður við N1 og er það nokkuð sem ég geri ALDREI aftur, ég mun labba framhjá N1 lendi ég í því að verða bensínlaus nálægt stöð frá þeim, þetta er ekkert nema glæpasamfélög, þ.e.a.s. N1, Olís og Skeljungur.
Ég er alla vega ekki að fara að borga tæpar 180 krónur á líterinn fyrir að láta dæla á bílinn minn, frekar stend í úti í hvernig veðri sem er og geri þetta sjálf og það hjá Atlantsolíu.

En jæja, núna ætla ég að skella mér í smá pökkun og svo smá slökun í sófanum, enda á ég það skilið fyrir að vera svona dugleg að blogga ;)

Fyrsta bloggið á nýju útliti

Sunday, June 8th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Já, ég er komin aftur. Sagði þegar ég byrjaði að blogga á þessari síðu
að núna myndi ég verða dugleg að láta frá mér færslur. En síðan er búin
að vera í vinnslu í þónokkurn tíma vegna útlitsbreytinga en nú er hún
komin í gagnið að nýju og best hjá mér að standa við það sem ég sagði í
upphafi.

Það er margt og mikið búið að vera um að vera hjá mér frá því ég
bloggaði síðast, m.a. breytingar í vinnunni og tvær utanlandsferðir.

Ég er núna orðin stafsmaður hjá Vodafone, varð það í lok febrúar, þar
sem Vodafone keypti Mömmu og fylgdi starfsfólk Mömmu með í kaupunum,
ekki slæm kaup það :Þ
Ég er mjög ánægð með breytingarnar, fullt af nýju fólki, mjög góður
starfsandinn og gott umhverfi, bara í einu orði sagt frábær vinnustaður.

En snúum okkur að utanlandsferðunum, við hjónin skelltum okkur í
brúðkaupsferðina sem við höfum verið að safna okkur fyrir í smá tíma.
Farið var til London í byrjun mars, ekki seinna en vænna þar sem bráðum
eru liðin 4 ár frá því að við giftum okkur. Það stóð til að fara til
Berlin, en svo fengum við ferðina til London á betri díl. Þetta var
alveg yndisleg ferð þar sem við áttum saman tíma alveg útaf fyrir okkur
og gátum notið lífsins tvö ein, en auðvitað var barnanna mikið saknað.

Þegar ég mætti svo í vinnu á öðrum degi eftir brúðkaupsferðina var
starfsmannafundur hjá Vodafone, þar var tilkynnt að árshátíð Vodafone
yrði haldin á Alicante, þannig að þarna fengum við aðra ferð upp í
hendurnar. Ferðin var borguð að fullu fyrir mig, en við þurftum sjálf
að borga smáaur fyrir Axel.

Það var sem sagt farið til Alicante 16. – 19. maí. Þessi ferð var djamm
út í eitt allan tímann og held ég að ég hafi ekki djammað svona mikið á
einni helgi síðan á þjóðhátíð 2002 þegar ég fór með Eddu og Jóni Inga.
Það var flogið út aðfaranótt föstudags, í flugstöðinni voru drukknir
2-3 bjórar, sofið í fluginu og þegar til Alicante var komið var farið
og komið sér fyrir á hótelinu. Síðan var farið og fengið sér að borða
og meiri bjór drukkinn, loks skroppið í mollið þar sem var verslaður
kassi af bjór, nokkrir breezerar og tvær flöskur af eplasnafs og einnig
smá verslað handa börnunum (gott að versla þetta í sömu
verslunarferðinni). Restin af deginum fór svo í afslöppun og um kvöldið
var svo drukkið og farið niður á torg þar sem diskósvæðið er og djammað
til klukkan að verða fimm um morguninn.
Annar dagurinn fór í slökun, smá rölt um svæðið og bjórdrykkju og
keypur var annar bjórkassi og nokkrir breezerar til viðbótar. Um
kvöldið var svo árshátíðin, þetta var alveg frábær árshátíð í alla
staði og skemmtiatriðin alveg meiriháttar. Maturinn og fínn og nóg
drukkið af rauðvíninu ;) En við djömmuðum ekki lengi þetta kvöldið
miðað við hin kvöldin og vorum farin að sofa um þrjúleytið.
Þegar okkur tókst að vakna þriðja daginn, var farið út að borða og rölt
um svæðið, en nánast allir veitingastaðir voru lokaðir og ekki ein
einasta búð opin. Ætlunin var að taka síðasta kvöldið rólega, en ég
held bara að það hafi verið mesta djammkvöldið, alla vega var drukkið
mest það kvöldið, bjór og heimatilbúnir kokteilar. Mæli eindregið með
að blanda saman eplasnafs og breezer og eplasnafs, vodka og smá dass af
fanta lemon :Þ En kvöldið sem við ætluðum að taka rólega og fara snemma
að sofa, endaði með því að við fórum að sofa á milli klukkan sex og sjö
um morguninn.
Síðasta daginn tókst okkur að vera vöknuð í morgunmatinn klukkan tíu um
morguninn, þrátt fyrir að hafa ekki farið að sofa fyrr en klukkan var
að ganga sjö. Eftir morgunmatinn og eftir sturtu, losuðum við herbergið
okkar og fórum svo á röltið ásamt fleira fólki um svæðið, versluðum
smá, m.a. tvær flöskur af eplasnafs til viðbótar til að hafa með heim.
VIð flugum svo heim um klukkan ellefu um kvöldið. vorum lent um tvö
leytið og komin heim í okkar bæli um fjögurleytið um nóttina.
Ferðin var hreint út sagt alveg frábær og eitt besta djamm sem ég farið á.

Svo er það helst að frétta núna að bráðum fer að koma að en einum
flutningnum, ætluðum að kaupa eigin íbúð þegar leigutímanum væri lokið
hérna, en það kaupir enginn með vit í kollinum eins og staðan er í dag.
En vonandi fer þetta að lagast og vonandi getum við keypt okkar fyrstu
eign fljótlega, en þangað til förum við í en eitt leiguhúsnæðið og
vonandi það síðasta.

Já, það má náttúrlega ekki gleyma aðalfréttinni, það getur verið að
þriðja utanlandsferðin á árinu verði í haust, það er samt ekkert komið
á hreint ennþá, en ég vona svo innilega að úr henni verði, þar sem
áfangastaðurinn yrði borgin mín BERLIN.

Ég ætla að láta þessar fréttir af mér duga í bili, ef þið hafið áhuga
þá getið þið skoða Alicante myndirnar í myndagallerýinu mínu.

Tjá tjá

RSS

Dagatal

September 2010
M T W T F S S
« Aug    
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930  

Flokkar