Gamla síðan

Gleðileg jól, gleðilegt ár og takk fyrir það gamla og allt það

Miðvikudagur, janúar 2nd, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Jólunum eyddi ég heima ásamt Axel og börnunum og mamma og Biggi bróðir komu og voru hjá okkur.
Við vorum með hamborgarhrygg og lambahrygg í jólamatinn (höfðum
tvíréttað þar það borða ekki allir svínakjöt) ásamt ýmislegu meðlæti og
svo var súkkulaðimús í eftirmatinn sem hefði dugað handa 30 manns, en
ég ákvað að tvöfalda uppskriftina þar sem mér fannst þetta eitthvað svo
lítið, en nei nei, þetta hefði í alvöru dugað fyrir a.m.k. 30 manns.
Ég fékk margt og mikið í jólagjöf og m.a. allt það sem var á
óskalistanum. Á óskalistanum var sléttujárn, úlpa, ryksuga, bækur eftir
Arnald og skartgripur, annað hvort armband eða hálsmen. Ég fékk
sléttujárn frá mömmu, úlpu frá Axel, Arnald frá Bigga bróðir og hálsmen
frá börnunum, svo fengum við Axel alvöru ryksugu græju frá tengdó. En
það var líka ýmilsegt annað sem leyndist í pökkunum, eins og gjafakort
í Ikea, konfekt, matreiðslubók, peningur frá ömmu sem við Axel fórum og
keyptum okkur viðbót við stellið fyrir og svo leyndist margt annað
undir trénu.
Börnin fengu líka heljarinnar mikið af gjöfum, alveg fullt af fötum og
nýju dóti og var spennan mikil þegar komið var að því að opna pakkana.
Ég gaf Axel úlpu og meira segja var úlpan sem ég gaf Axel keypt í sömu
búð og úlpan sem hann gaf mér, það er ekki hægt að segja annað en að
við séum samrýnd.
Svo fengum við Axel mynd í ramma frá stelpunni og gifssteypu af
hendinni hans Jóns frá honum, en þetta voru gjafirnar sem þau gerðu á
leikskólanum og áreiðanlega bestu gjafirnar.
Mamma var hjá okkur fram á annan í jólum og á jóladag komu Biggi og
Solla (Solla stirða eins og Bylgja Rós kallar hana) og borðuðum við öll
saman hangikjöt og fleira og tókum svo eitt Trivial og auðvitað voru
það við hjónum sem unnum :)
Biggi og Solla fóru svo út til ameríku á annan í jólum og mamma fór
austur, um kvöldið á annan í jólum fórum við svo í jólamat til tengdó
og fengum meira hangikjöt.
Dagana á milli jóla og nýárs vorum við Axel að vinna og börnin á
leikskólanum, hættum að vísu snemma að vinna á föstudeginum, þar sem
við ákváðum að skella okkur í sveitina til mömmu til að fara á jólaball
með börnin á laugardeginum.
Það var voða fínt á jólaballinu á Flúðum, Bylgja Rós og Jón Hreiðar
skemmtu sér alveg konunglega, hittu Grýlu og jólasveininn, Jón Hreiðar
var mjög hrifinn af þeim báðum en Bylgju Rós leist betur á jólasveininn
hann Þvörusleiki, hún skellti sér svo uppá svið að syngja með
hljómsveitinni.
Við komum svo heim aftur á laugardagskvöldinu, fengum okkur kjúlla á
KFC áður en við fórum heim, svo þegar heim var komið og börnin sofnuð,
áttum við Axel kósý kvöld fyrir framan sjónvarpið. Horfum á I am
legend, mjög góð mynd.
Á gamlársdag vorum við heima þar til kl. sex, þá fórum við til tengdó
og eyddum kvöldinu með þeim. Við fengum hamborgarhrygg í matinn og
meðlæti með því. Svo var horft á fréttaannálana og skaupið, en það
fannst mér frekar misheppnað, það var eitt og eitt sem hægt var að
brosa að, en skaupið var ekki að gera sig fyrir mig í ár. Ein stjarna.
Á miðnætti var himininn í borginni skreyttur öllum regnbogans litum,
það er alveg ótrúlegt með íslendinga hvað þeir hafa gaman að þessu og
er ég ein af þeim. Það er sama hvernig viðrar við látum ekkert stoppa
okkur :) Bylgja Rós og Jón Hreiðar fengu stjörnuljós og voru hæst ánægð
með það, Bylgju Rós var ekki vel við allar sprengjurnar og lætin og
fannst best að halda sig innan dyra, en Jóni Hreiðari fannst þetta æði,
en þetta eru fyrstu áramótin sem hann sefur ekki af sér.
Við vorum komin heim rúmlega eitt og voru englarnir á heimilinu fljótir
að sofna, en við hjónin ætluðu að setjast fá okkur smá í glas, en svo
vorum við svo þreytt að rúmlega tvö vorum við búin að gefast upp vegna
þreytu og komin í bælið.
Nýársdagur var svo bara í rólegheitum heima, ég gerði brautertu og
bananaköku í kaffinu og svo fengum við okkur heitt súkkulaði með rjóma,
algjört æði.
Reyndar eyddi ég nánast öllum nýársdeginum í eldhúsinu, því þegar ég
var búin að ganga frá eftir kaffið þá var komið að því að undirbúa
kvöldmatinn.
Krakkarnir voru lengi að koma sér í bælið um kvöldið, Bylgja Rós þar
sem hún var svo hrædd við allar sprengingarnar sem hún heyrði og Jón
Hreiðar einfaldlega afþví að hann var ekki í stuði til að fara að sofa,
en um miðnætti voru þau loksins sofnuð og skriðum við foreldrarnir þá í
bælið.
Nú er svo allt komið af stað aftur, vakna klukkan sjö á morgnana, vinna, heim og sofa, þannig gengur sólarhringurinn fyrir sig.

Ég óska ykkur sem lesið þetta farsældar á nýja árinu og gangið hægt um gleðinnar dyr.

Orðin árinu eldri

Fimmtudagur, nóvember 22nd, 2007 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Jæja, ég lofaði því víst að vera duglegri að blogga í þetta skiptið heldur en í fyrri tilraunum sem ég hef gert.
Nú er ég orðin árinu eldri, nánar til tekið varð ég það á þriðjudaginn sl. 20. nóv, þá varð ég 27 ára gömul, er það hár aldur?
Ég finn nú ekki mikla breytingu á mér, ekki einu sinni eitt grátt hár….

Svo eru börnin mín líka orðin einu árinu eldri, Jón Hreiðar varð 2ja
ára 18. október og Bylgja Rós varð 4ra ára 11. nóvember, alveg ótrúlegt
hvað tíminn líður, ekki nema tæp tvö ár í að Bylgja Rós fari í skóla,
alveg ótrúlegt, hún er nýfædd en samt oðin svo sjálfbjarga og ákveðin
ung dama og svo Jón Hreiðar algjör grallari og stækkar svo hratt, en
samt er hann algjör stubbur, kannski finnst manni það bara afþví að
hann er litla barnið á heimilinu :)

Svo styttist bráðum í það að kallinn verði einu árinu eldri, ég er búin
að ákveða hvað ég gef honum í afmælisgjöf, eða það er tvennt sem kemur
til greina, annað fær hann í afmælisgjöf og hitt í jólagjöf, en ég ætla
náttúrlega ekki að gefa það upp hérna hvað það verður, því þá verður
hann fljótur að komast að því.

En annars er bara nóg að gera í vinnunni og svo styttist náttúrlega í
jólaundirbúninginn, jólahlaðborðin og allt annað sem tengist jólunum,
kannski ég ætti bara að skella hér inn jólagjafaóskalista svo kallinn
geti fengið yfirlit yfir hvað hann geti hugsanlega gefið mér í jólagjöf

Æi, set það inn næst.

Fyrsta færslan en ekki sú síðasta

Fimmtudagur, október 25th, 2007 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Nú er ætlunin að ég taki mig til og bætist við hóp þáttakanda í bloggheiminum.
Ég hef gert tilraun áður og ekki bara eina, ekki bara tvær, heldur
nokkrar, þannig að við skulum vona að núna sé minn tími kominn.
Ég kem til með að bæta ýmsu inn á síðuna mína, ætla m.a. að hafa
uppskriftir á síðunni, svo ætla ég aðeins að skoða hver uppruni minn er
og gera ættartré, eins langt aftur og ég kemst og svo mun ýmislegt
fleira bætast við, en þið verðið bara að bíða og sjá.

Endilega bjóðið mig velkomin í bloggheimin og ég mun standa mig.

RSS

Dagatal

febrúar 2012
Þ Mi Fi L S
« des.    
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
272829  

Flokkar