Er byrjuð að taka til í fortíðinni

Laugardagur, ágúst 30th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Já, eins og þið sjáið sem gefið ykkur tíma í að lesa bloggið mitt að þá er að verða mánuður frá síðasta bloggi. En það eru ástæður fyrir því og ætla ég að skýra frá þeim hér í grófum dráttum og svo seinna mun ég kannski segja nánar frá þvi.

Ég ákvað fyrir svolitlu síðan að fara að taka til í fortíðinni, fortíðin er að fara með mig og til að ég geti unnið úr henni verð ég að koma henni frá mér og byrja að vinna í henni sem ég er núna byrjuð á að gera og er búið að létta aðeins á mér með því að gera það sem ég er þegar búin að gera.
Málið er að frá árinu 1990 til vorsins 1993 varð ég fyrir skelfilegri lífsreynslu, fyrir utan það að árið 1991 missti ég pabba minn, þannig að þetta var ekki á það bætandi. Ég hef þagað yfir þessu í mörg ár, alveg þar til ég kynntist Axel árið 2002 þá sagði ég fyrst frá þessu og fyrsta manneskjan sem ég sagði frá þessu var vinkona mín, en svo þegar það voru ekki liðnir tveir mánuðir frá því að við Axel fórum að vera saman ákvað ég að segja honum frá þessari lífsreynslu og var það eingöngu afþví að mér fannst ég geta treyst honum.
Ég hef aldrei getað treyst neinum eftir þessa lífsreynslu, en Axel kom inn í líf mitt eins og bjargvættur, því þegar ég kynntist honum var ég nálægt því að láta mig hverfa fyrir fullt og allt, annað hvort fara til annars lands eða eitthvað annað verra. Axel er sá eini sem ég hef getað borið traust til og Axel er sá eini sem hefur hjálpað mér eins og mögulega hefur verið hægt og er það eitthvað sem ég á aldrei eftir að gleyma, það sem hann hefur gert fyrir mig frá því að ég sagði honum frá þessu er ómetanlegt.

Það var fyrst núna fyrir Verslunarmannahelgi sem ég sagði mömmu frá þessari ömurlegu lífsreynslu og var það eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera í lífi mínu, en Ásta systir hennar var hjá henni þegar ég sagði mömmu frá þessu og var ég þá búin að segja Ástu frá þessu áður, Axel var mér sem stoð og stytta þegar ég sagði mömmu frá þessu og var það hann sem kláraði að segja henni frá þessu því að ég brotnaði niður, gat ekki meir.
Og núna er ég að vinna í því að segja ættingjum og vinum frá þessu og ætla ég að byrja á því að opna mig hérna og segja hvað það var sem ég lenti í, kannski er þetta rangur staður, því það getur hver sem er lesið þetta, en þetta er eitthvað sem ég verð að gera til að taka til í minni fortíð, því ég get ekki lifað með henni í laumi lengur, ekki bara mín vegna, heldur líka Axels vegna og ég veit það núna að ekkert af þessu er mín sök ég var bara barn og ég veit að þó að það sé erfitt að setja þetta hérna niður að þá á þetta eflaust eftir að létta á mér.

Á þessum árum var ég misnotuð kynferðislega og ekki á einhvern saklausan hátt, heldur mjög gróflega, en ég mun ekki fara útí nánari lýsingar hér, enda er ekki hver sem er sem þarf að vita nákvæmlega hvað gerðist, það er bara eitthvað sem mínir nánustu fá að vita og eins hver gerandinn var, kannski á fólk samt eftir að heyra seinna hver gerandinn var en mér er alveg sama, fólk má vita það bara ekki hér.
Ég fór niðrá lögreglustöð fyrir stuttu síðan með Axel til að kæra þetta og lenti á alveg yndislegum lögreglumanni, hann skoðaði málið með lögfræðingum uppá fyrningu og þess háttar að gerast og kom í ljós að það er eingöngu hálft ár frá því að þetta var fyrnt, mér sárnaði mikið við að heyra það, en þetta var samt sem áður bókað.

En þrátt fyrir það ætla ég ekki að leyna þessu lengur og ég ætla að segja frá þessu, því þetta er eitthvað sem ég þarf ekki að skammast mín fyrir hvorki nú né seinna því þetta var ekki mér að kenna og ég hef aldrei þurft að skammast mín fyrir þetta, ég var notuð og líf mitt var skemmt til frambúðar, þetta er eitthvað sem ég á eftir að lifa með alla ævi en ég er samt að vinna í málunum, því það hjálpar og ég hef nú þegar fundið fyrir miklum létti, því mér finnst eins og ég sé búin að lifa í lygi í öll þessi ár og finnst eins og ég hafi logið að öllum í kringum mig en núna er ég hætt því. Ég á það ekki skilið, ég á það skilið að komið sé fram við mig sem manneskju, því ég hef akkúrat ekkert gert af mér nema að vera góða manneskjan aðstoðað vini og ættingja og komið eins vel fram við þá og ég mögulega hef getað.

Axel hefur verið stoð mín og stytta í þessu og eins og ég sagði áður það er ómetanlegt hvað hann hefur hjálpað mér og mun ég aldrei vita hvernig ég get þakkað honum eða endurgoldið það sem hann hefur gert fyrir mig.

Ég á það skilið að það sé komið hreint fram við mig og því ætla ég að koma hreint fram með lygina sem ég hef lifað í.

Ég á yndisleg börn

Mánudagur, ágúst 4th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Ég get fullyrt það hér og nú að ég og Axel eigum yndislegustu börn í heimi og reyndar höfum við hjónakornin alltaf haldið því fram, (eins og allir aðrir foreldrar).

Fyrir ekki svo löngu síðan fór ég á Flúðir að sækja stelpuna eftir að hún hafði verið í smá sumarfríi hjá ömmu í sveitinni og ákvað ég í leiðinni að fara í kirkjugarðinn með krakkana að heimsækja leiðið hans pabba og sagði því við krakkana að við værum að fara að heimsækja afa Jón. Þegar við komum þangað og göngum fram hjá kirkjunni þá vill Jón Hreiðar endilega fara inní kirkjuna, því hann stóð í þeirri meiningu að þetta væri húsið hans afa Jóns, ég sagði að afi Jón ætti heima uppá himninum en þegar okkur langaði að heimsækja hann þá færum við í kirkjugarðinn. Við förum síðan að leiðinu hans pabba og ég segi að hér sé afi Jón, Jón Hreiðar skilur náttúrlega ekkert í því hvað ég er að fara, en Bylgja Rós er farin að meðtaka þetta svona lala.

Síðan núna fyrir helgina þá er Axel að keyra mig og krakkana uppá Flúðir og þegar við keyrum framhjá kirkjunni á milli Hveragerðis og Selfossar þá segir Jón Hreiðar, þarna á afi Jón heima og bendir á kirkjuna, ég segi nei, hann á ekki heima þarna, hann á heima uppá himninum.

Þá kemur það besta gullkorn frá stelpunni sem ég og Axel höfum nokkrum sinnum heyrt og það vottaði fyrir tárum í augum okkar beggja. Það heyrist í Bylgju Rós: „Pabbi og mamma, ég vildi að ég ætti svo stóran óskastein en að ég gæti samt haldið á honum, þá myndi ég óska mér að afi Jón væri til og ekki uppá himninum heldur hérna hjá okkur þar sem við erum.“
Okkur hjónunum fannst þetta það yndislegasta sem við höfum heyrt og efast ég ekki um að þið sem lesið þetta séuð sammála.

Vildi bara blogga aðeins um þetta, er annars að byrja að vinna aftur á morgun eftir sumarfríið og er það svo sem ágætt nóg komið af sumarfríi í bili.

Tjá tjá í bili.

Smá blogg

Miðvikudagur, júlí 23rd, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Ákvað að láta aðeins heyra í mér.

Ég fer að verða hálfnuð með sumarfríið mitt og er lítið búin að gera annað en að vinna í því að koma okkur fyrir hér á nýja staðnum, enda er kallinn ekki í neinu sumarfríi þannig að maður fer ekki langt. Bylgja Rós er núna í smá fríi hjá ömmu sinni í sveitinni en á meðan höfum við Jón Hreiðar verið að dúlla okkur saman.

Ég er að vísu búin að vera þvílíkt skrítin síðustu daga, held að ég þjáist af síþreytu, ég er alla vega búin að vera frekar þreytt og skrítin í hausnum og eins með mikinn svima og hefur bara einfaldlega ekki liðið vel, langar mest til að liggja undir sæng og sofa, en það er ekki leyfilegt á þessum bæ. En þetta hlýtur að lagast eins og allt annað.

Við ætlum kannski að kíkja austur á Flúðir um verlsunarmannahelgina, en það á allt eftir að koma í ljós, fer eftir veðri, vindum og heilsu.

Læt heyra meira í mér síðar.

Tjá tjá….

Brúðkaupsafmæli og afmælisdagur pabba

Þriðjudagur, júlí 15th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Hallú

Já, þá erum við flutt og lýst okkur bara nokkuð vel á nýja heimilið. Að vísu gekk ekkert alltof vel að flytja þar sem við þurftum að eyða deginum sem við fengum lyklana í að þrífa íbúðina þar sem hún var nánast algjörlega óþrifin :(
Laugardagurinn átti að vera aðaldagurinn og svo bara sunnudagurinn til að klára, en það fór á allt aðra leið og endaði með því að við hjónin þurftum að taka okkur frí í vinnunni á mánudeginum og var nánast ekkert sofið fyrr en við fórum að sofa á miðvikudagskvöldinu, svo var það líka þannig að þeir sem ætluðu að hjálpa okkur komust bara á laugardeginum, nema Hemmi hann komst báða dagana, var að vísu svolítið mikið glær á sunnudeginum ;)

En flutningunum er alla vega lokið og búið að skila af sér gömlu íbúðinni. Og nú er það bara að týna upp úr kössunum hér á nýja staðnum og koma okkur fyrir, en það gengur frekar hægt þar sem ég er ein í að ganga frá dótinu. En þetta hefst allt saman.

Svo í dag eigum við hjónin brúðkaupsafmæli, búin að vera gift í heil fjögur ár og eigum því ávaxta- og blómabrúðkaupsafmæli, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.

Eins hefði elsku pabbi minn orðið 67 ára í dag, skrítið að það séu að verða heil 17 ár síðan hann dó, söknuðurinn er alltaf sár og á alltaf eftir að vera til staðar og það líður ekki dagur að ég hugsi ekki um hann, það að ég hafi misst pabba minn er eitthvað sem ég sætti mig aldrei við, en ég læri að lifa með því. Og það að fá að sjá nafna hans pabba, hann litla Jón Hreiðar minn, á hverjum degi, minnir mig líka á pabba, því það er alveg ótrúlegt hvað sonur minn er líkur pabba mínum og ég veit að ég er ekki sú eina sem finnst það. Og ég er svo stolt af því að hafa skírt son okkar Axels, Jón Hreiðar, ég efast ekki að afinn sé stoltur af nafna sínum og eigi eftir að fylgja honum alla tíð og eins líka Bylgju Rós.
Ef ég ætti eina ósk þá væri hún sú að pabbi hefði lifað það að fá að sjá og faðma barnabörnin sín og að þau hefðu fengið að kynnast afa sínum.

Jæja, ætla að halda áfram að rífa uppúr kössunum.

Til hamingjum með daginn elsku pabbi….

Flutningahelgin mikla

Föstudagur, júlí 4th, 2008 | Gamla síðan | mótsvör: 0

Þá er komið að flutningahelginni sjálfri, ég er búin að vera á fullu að pakka nánast alla daga langt fram á nótt og vinn svo á daginn, verð fegin þegar þetta verður búið. En samt á ég alveg eftir að sakna þess að búa hérna, við erum búin að eiga yndislega nágranna og þetta er alveg yndislegt hverfi til að búa í, ég er ekki alveg að skilja hvað mörgum finnst Breiðholtið vera mesta krimmahverfið í bænum. Ég viðurkenni það samt alveg að þegar við Axel bjuggum í fellunum þegar við byrjuðum fyrst að búa, þá stóð manni ekkert alltaf á sama, alltaf þvílík ólæti, dauðadrukknir nágrannar bankandi uppá hjá manni um miðja nótt og eilífur ófriður, en hérna í bökkunum er allt annað og bara æðislegt að vera. „Það er gott að búa í Bökkunum.“ En við erum náttúrlega ekki að flytja langt, nánast í næstu blokk =)

Ég tók mér einn sumarleyfisdag frá vinnunni í dag, enda heilmikið eftir og á ég eflaust eftir að vera langt fram á nótt að græja hlutina, nýju íbúðina fáum við svo í hádeginu á morgun. Mamma var svo indæl að taka krakkana í sveitina, enda gengur mun betur að flytja þegar þau eru í pössun og maður þarf ekki að hafa augun á þeim.

Ég ætla að hafa þetta stutt núna, vildi bara aðeins láta vita af mér áður en við flytjum og eins þakka ég nakta nágrannanum fyrir að vera að ryksuga svalirnar sínar í dag, það bjargaði deginum =)

Læt vita næst af mér eftir flutningana, þangað til þá….

 

RSS

Dagatal

febrúar 2012
Þ Mi Fi L S
« des.    
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
272829  

Flokkar