Um mig

Hmmmm… Um mig segiði:
Ég heiti Kristín Ásta og er fædd í nóvember 1980, gift, tveggja barna móðir og bý í Grafarvoginum.
Maðurinn minn heitir Axel Rafn og yndislegu börnin okkar tvö heita Bylgja Rós (2003) og Jón Hreiðar (2005).

Ég er fædd og uppalin í litlu þorpi út á landi sem heitir Flúðir, flutti þaðan fyrst 18 ára og þá til Reykjavíkur, staldraði svo við á Flúðum aftur í smá tíma og skellti mér svo til Þýskalands í tæpt ár, svo má segja að frá 2001 hafi ég nánast búið alveg í höfuðborginni.

Ég vinn hjá alveg frábæru fyrirtæki með alveg frábæru fólki og er ætlunin að vera þar, þar til ég verð rekin eða enda í gröfinni.

Í stikkorðum er ég móðir, eiginkona, dóttir, systir, barnabarn, tengdadóttir, mákona, vinkona, frænka, vinnufélagi og sporðdreki..

RSS

Dagatal

febrúar 2012
Þ Mi Fi L S
« des.    
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
272829  

Flokkar